Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 11. desember 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Rabiot fær lokatilboð frá PSG - Stórlið bíða
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Adrien Rabiot mun á næstunni fá lokasamningstilboð frá PSG samkvæmt heimildum ESPN.

Rabiot verður samningslaus í sumar og hann má hefja viðræður við erlend félög í janúar og getur farið frítt í sumar.

Barcelona, Juventus, Tottenham Hotspur og Liverpool hafa öll sýnt Rabiot áhuga.

Thomas Tuchel, þjálfari PSG, ætlar ekki að hafa Rabiot sem lykilmann hjá sér út tímabilið ef hann fer ekki að ganga frá nýjum samningi.

Það hefur farið illa í Rabiot og óvíst er hvort að aðilar muni ná saman um nýjan samning.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner