Liverpool gæti reynt við Osimhen - PSG ætlar ekki að selja Barcola - Williams orðaður við Arsenal
   fös 13. júní 2025 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tók nokkur hundleiðinleg en mikilvæg símtöl
Icelandair
EM KVK 2025
Landsliðsþjálfarinn á fundinum í dag.
Landsliðsþjálfarinn á fundinum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fanndís kom inn í síðasta hóp en fer ekki með á EM.
Fanndís kom inn í síðasta hóp en fer ekki með á EM.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arna Eiríksdóttir var líka í síðasta hóp.
Arna Eiríksdóttir var líka í síðasta hóp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, þurfti að taka nokkur hundleiðinleg símtöl áður en hann valdi lokahóp sinn fyrir Evrópumótið í Sviss.

Það voru margir leikmenn sem gerðu sér vonir um að komast í hópinn en það er bara pláss fyrir 23 leikmenn.

„Þetta eru ekki skemmtilegustu símtöl sem þú tekur," sagði Þorsteinn við Fótbolta.net í dag. „En þau eru mikilvæg."

„Ég tók nokkur símtöl sem voru hundleiðinleg. Mér finnst það eðlilegra. Það er betra að tilkynna leikmönnum þetta persónulega í stað þess að þær lesi þetta í fjölmiðlum."

Enginn sérstakur varalisti
Það er enginn útgefinn listi af varamönnum sem eru næstar inn í hópinn ef meiðsli koma upp.

„Ég tók ekkert svoleiðis á þetta því maður veit ekkert hver er að fara að detta út ef það gerist eitthvað svoleiðis. Það er enginn varalisti sem við þurfum að skila inn. Ef það gerist eitthvað á næstunni þá tékkum við bara á stöðu leikmanna," sagði Þorsteinn.

Þeir leikmenn sem hafa verið í hóp frá síðasta Evrópumóti en fara ekki með á EM núna:
Andrea Rán Hauksdóttir (Tampa Bay)
Anna Rakel Pétursdóttir (Valur)
Aldís Guðlaugsdóttir (FH)*
Arna Eiríksdóttir (FH)
Arna Sif Ásgrímsdóttir (Valur)*
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving (Stjarnan)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Madrid CFF)
Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
Bryndís Arna Níelsdóttir (Vaxjö)*
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir (RB Leipzig)*
Elín Metta Jensen (Valur)
Elísa Viðarsdóttir (Valur)
Guðný Geirsdóttir (ÍBV)
Fanndís Friðriksdóttir (Valur)
Jasmín Erla Ingadóttir (Valur)
Lára Kristín Pedersen (Club Brugge)
Kristín Dís Árnadóttir (Breiðablik)
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Breiðablik)*
Selma Sól Magnúsdóttir (Rosenborg)*
Svava Rós Guðmundsdóttir - Var að eignast barn
*Eru meiddar

Þær sem eru hættar frá síðasta móti:
Ásta Eir Árnadóttir
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
Hallbera Guðný Gísladóttir
Íris Dögg Gunnarsdóttir
Sandra Sigurðardóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir
Sif Atladóttir
Athugasemdir