„Ég er alltaf ánægður eftir sigur á velli eins og Stamford Bridge," sagði Pep Guardiola eftir 0-3 sigur gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag.
City setur alvöru pressu á Arsenal í titilbaráttunni með þessum sigri en liðin mætast um næstu helgi.
City setur alvöru pressu á Arsenal í titilbaráttunni með þessum sigri en liðin mætast um næstu helgi.
„Ég ber mikla virðingu fyrir Arsenal og því sem þeir hafa gert. Ég þekki stjórann, leikmennina og gæðin sem þeir búa yfir. Arsenal hefur verið besta lið Englands til þessa, besta lið Evrópu. Að vinna Arsenal einu sinni er erfitt, ímyndið ykkur að vinna þá tvisvar á nokkrum vikum. Ég vil segja við stuðningsmennina að bera virðingu fyrir Arsenal."
Guardiola hrósaði þá Rayan Cherki sem átti stórleik.
„Rayan er ótrúlega hæfileikaríkur. Vandamálið er að hann er stundum of nálægt Donnarumma þegar hæfileikar hans nýtast best á síðasta þriðjungi vallarins. Hann verður að vera nær Haaland. Hann er nú þegar ótrúlegur leikmaður og hann vill verða betri."


