Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   sun 12. apríl 2026 15:47
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland: Ísak skoraði í fallbaráttuslagnum
Mynd: Köln
Köln 3 - 1 Werder Bremen
1-0 Said El Mala ('7 , víti)
2-0 Ragnar Ache ('65 )
2-1 Romano Schmid ('75 , víti)
3-1 Isak Johannesson ('97)
Rautt spjald: Marco Friedl, Werder ('24)

Ísak Bergmann Jóhannesson lék allan leikinn er FC Köln vann mikilvægan fallbaráttuslag gegn Werder Bremen í þýska boltanum í dag.

Leikurinn byrjaði mjög vel fyrir heimamenn í Köln þegar Saïd El Mala skoraði úr vítaspyrnu snemma leiks og svo var Marco Friedl rekinn af velli í liði gestanna frá Bremen með beint rautt spjald. Ísak átti sendinguna í vítateig sem vítaspyrnan spratt upp úr.

Heimamenn í Köln voru sterkari aðilinn allan leikinn enda leikmanni fleiri. Þeim tókst þó ekki að tvöfalda forystuna fyrr en eftir hornspyrnu í síðari hálfleik, en gestirnir gáfust ekki upp og fengu dæmda vítaspyrnu. Romano Schmid skoraði af vítapunktinum og var smá spenna í leiknum á lokakaflanum þó að heimamenn væru enn við völd.

Sigurinn var þó ekki gulltryggður fyrr en seint í uppbótartíma þegar Ísak komst á blað. Hann slapp í gegn eftir skyndisókn og virtist ætla að gefa boltann fyrir markið, en markvörður gestanna blakaði boltanum í eigið net. Markið er skráð á Ísak sem stendur, en þeirri skráningu gæti verið breytt í sjálfsmark. Sjáðu markið.

Niðurstaðan 3-1 sigur fyrir Köln sem er núna fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið og tveimur stigum fyrir ofan Werder Bremen.
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 33 27 5 1 117 35 +82 86
2 Dortmund 33 21 7 5 68 34 +34 70
3 RB Leipzig 33 20 5 8 65 43 +22 65
4 Stuttgart 33 18 7 8 69 47 +22 61
5 Hoffenheim 33 18 7 8 65 48 +17 61
6 Leverkusen 33 17 7 9 67 46 +21 58
7 Freiburg 33 12 8 13 47 56 -9 44
8 Frankfurt 33 11 10 12 59 63 -4 43
9 Augsburg 33 12 7 14 45 57 -12 43
10 Mainz 33 9 10 14 42 53 -11 37
11 Hamburger 33 9 10 14 39 53 -14 37
12 Union Berlin 33 9 9 15 40 58 -18 36
13 Gladbach 33 8 11 14 38 53 -15 35
14 Köln 33 7 11 15 48 58 -10 32
15 Werder 33 8 8 17 37 58 -21 32
16 Wolfsburg 33 6 8 19 42 68 -26 26
17 Heidenheim 33 6 8 19 41 70 -29 26
18 St. Pauli 33 6 8 19 28 57 -29 26
Slapp
banner
banner