Toulouse 0 - 4 Lille
0-1 Thomas Meunier ('23 )
0-2 Romain Perraud ('50 )
0-3 Matias Fernandez-Pardo ('55 )
0-4 Olivier Giroud ('88 , víti)
Rautt spjald: Mark McKenzie, Toulouse ('48)
0-1 Thomas Meunier ('23 )
0-2 Romain Perraud ('50 )
0-3 Matias Fernandez-Pardo ('55 )
0-4 Olivier Giroud ('88 , víti)
Rautt spjald: Mark McKenzie, Toulouse ('48)
Landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson hefur verið að spila fantavel með Lille að undanförnu og hann hélt því áfram í dag.
Hákon Arnar lagði upp fyrsta mark leiksins þegar Lille burstaði Toulouse á útivelli. Markið lagði hann upp fyrir bakvörðinn Thomas Meunier.
Mark McKenzie, leikmaður Toulouse, fékk rautt spjald í byrjun seinni hálfleiks og þá gekk Lille á lagið. Romain Perraud skoraði aðeins tveimur mínútum síðar, Matias Fernandez-Pardo var næstur og Olivier Giroud barði síðasta naglinn í kistu Toulouse.
Lokatölur 0-4 og spilaði Hákon Arnar allan leikinn fyrir Lille sem er komið upp í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar.



