Wijnaldum aftur í úrvalsdeildina? - Everton fylgist með Tchaouna - Bastoni ekki til Barca - Gordon efstur á óskalistanum
   sun 17. maí 2026 13:25
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið dagsins: Berjast um sæti í Evrópu
Mynd: EPA
Mynd: Brentford
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fjórir leikir hefjast á sama tíma í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem evrópubaráttuliðin Brighton, Brentford, Everton, Fulham og Sunderland mæta öll til leiks.

Brighton er hæst fyrrnefndra liða á stöðutöflunni þessa stundina með 53 stig fyrir næstsíðustu umferð tímabilsins. Sjöunda sætið gefur þátttökurétt í deildarkeppni Evrópudeildarinnar komandi haust og getur Brighton sett pressu á Liverpool í síðasta meistaradeildarsætinu með sigri í dag.

Fabian Hürzeler gerir eina breytingu á liði Brighton sem vann 3-0 gegn Wolves um síðustu helgi þar sem Joel Weltman kemur inn fyrir meiddan Kaoru Mitoma. Að sama skapi gerir Daniel Farke eina breytingu á liði Leeds sem gerði jafntefli við Tottenham í síðustu umferð. Þar kemur Sebastiaan Bornauw inn í varnarlínuna fyrir Pascal Struijk. Leeds siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar.

Brentford er aðeins tveimur stigum á eftir Brighton í evrópubaráttunni og gerir Keith Andrews tvær breytingar á byrjunarliðinu eftir 3-0 tap gegn Manchester City síðustu helgi.

Dango Ouattara kemur á kantinn fyrir Kevin Schade á meðan Vitaly Janelt spilar sinn fyrsta byrjunarliðsleik eftir að hafa meiðst í febrúar. Janelt kemur inn í liðið fyrir Aaron Hickey sem þýðir að Keane Lewis-Potter leikur í vinstri bakvarðarstöðunni og Mikkel Damsgaard færir sig á hinn kantinn. Hákon Rafn Valdimarsson er á sínum stað á varamannabekknum.

Brentford tekur á móti Crystal Palace í dag og til gamans má geta að síðasti leikur Palace var 3-0 tap gegn Man City, alveg eins og síðasti leikur Brentford. Palace heimsótti City þó í miðri viku og gerir Oliver Glasner fimm breytingar á byrjunarliðinu.

Jörgen Strand Larsen, Ismaila Sarr, Daichi Kamada, Adam Wharton og Chadi Riad koma inn í byrjunarliðið fyrir fimm leikmenn sem setjast allir á bekkinn. Glasner vill ekki taka áhættur með meiðsli fyrir úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í lok mánaðar.

Everton og Sunderland eigast þá við en þau eru tveimur og þremur stigum á eftir Brentford í baráttunni um sæti í Sambandsdeildinni.

David Moyes mætir til leiks með óbreytt byrjunarlið eftir jafntefli við Crystal Palace í síðustu umferð en Régis Le Bris gerir eina breytingu á liði Sunderland eftir markalaust jafntefli við Man Utd. Þar kemur Nilson Angulo inn fyrir Chemsdine Talbi.

Að lokum spilar Wolves við Fulham og eiga lærlingar Marco Silva í gestaliðinu frá London enn möguleika á að berjast um sæti í Sambandsdeildinni.

Bæði lið gera fjórar breytingar á byrjunarliðum sínum frá síðustu helgi. Issa Diop, Sander Berge, Oscar Bobb og Alex Iwobi koma inn í byrjunarliðið hjá Fulham.

Leeds United: Darlow, Justin, Bijol, Rodon, Bornauw, Ampadu, Stach, Tanaka, Aaronson, James, Calvert-Lewin
Varamenn: Perri, Longstaff, Piroe, Nmecha, Byram, Gnonto, Chadwick, Cresswell, Lienou.

Brighton: Verbruggen, Van Hecke, Dunk, Veltman, De Cuyper, Baleba, Gross, Hinshelwood, Minteh, Welbeck.
Varamenn: Steele, March, Rutter, Kostoulas, Milner, Boscagli, Gomez, Ayari, O’Riley.



Brentford: Kelleher; Kayode, Ajer, Collins, Lewis-Potter, Janelt, Jensen, Yarmoliuk; Ouattara, Damsgaard, Thiago
Varamenn: Valdimarsson, Hickey, Van den Berg, Pinnock, Henderson, Schade, Dasilva, Nelson, Furo

Crystal Palace: Henderson; Riad, Lacroix, Canvot; Munoz, Wharton, Kamada, Mitchell; Sarr, Strand Larsen, Pino
Varamenn: Benitez, Clyne, Richards, Devenny, Lerma, Hughes, Johnson, Guessand, Mateta



Everton: Pickford, O'Brien, Tarkowski, Keane, Mykolenko, Iroegbunam, Garner, Rohl, Dewsbury-Hall, Ndiaye, Beto.
Varamenn: Travers, Patterson, McNeil, Barry, George, Dibling, Coleman, Alcaraz, Armstrong.

Sunderland: Roefs, Geertruida, Mukiele, Alderete, Reinildo, Hume, Xhaka, Sadiki, Angulo, Le Fee, Brobbey
Varamenn: Ellborg, O'Nien, Cirkin, Diarra, Talbi, Isidor, Mayenda, Rigg, Jocelin.



Wolves: Sa, Gomes, Mosquera, S.Bueno, Krejci, Wolfe, Andre, J.Gomes, Mane, Hwang, Armstrong.
Varamenn: Bentley, H.Bueno, Arokodare, Lima, Toti, Bellegarde, Tchatchoua, A.Gomes, Edozie

Fulham: Leno, Castagne, Diop, Bassey, Robinson, Berge, Lukic, Bobb, Smith Rowe, Iwobi, Muniz.
Varamenn: Lecomte, Tete, Cuenca, Cairney, King, Wilson, Chukwueze, Kevin, Jimenez
Slapp
banner