Þjóðverjar sjá um dómgæsluna í leik Íslands gegn Portúgal í undankeppni EM á Laugardalsvelli annað kvöld. Aðaldómari leiksins er Daniel Siebert sem er í efsta dómaraflokki UEFA.
Siebert er 39 ára og dæmdi á HM í Katar. Hann dæmdi leikinn þegar Úrúgvæ vann Gana 2-0 en úrúgvæska liðið hefði þurft eitt mark í viðbót til að komast upp úr riðlinum.
Leikmenn Úrúgvæ veittust að Siebert eftir leik en þeir voru ósáttir við að fá ekki vítaspyrnu. Sóknarmaðurinn Edinson Cavani var á meðal þeirra sem sýndu mesta pirringinn. Og hann var enn pirraður í viðtali rúmum mánuði síðar: „Þeir verða að setja hann í fangelsi," sagði Cavani um Siebert.
Ísland - Portúgal
Dómari: Daniel Siebert (ÞÝS).
Aðstoðardómarar: Jan Seidel og Rafael Foltyn.
Fjórði dómari: Daniel Schlager.
VAR dómari: Bastian Dankert.
Aðstoðar VAR: Benjamin Brand.


