Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 19. nóvember 2022 18:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stefán Teitur: Gerum kröfu á að skora allavega tvö mörk í viðbót
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Teitur Þórðarson var að vonum ánægður með sigur íslenska landsliðsins í Eystrasaltsbikarnum í dag.


Lestu um leikinn: Lettland 8 -  9 Ísland

„Sigur í vítaspyrnukeppni var óþarfi, við áttum að klára leikinn í venjulegum leiktíma, gera kröfu á að skora að allavega tvö í viðbót," sagði Stefán í samtali við KSÍ eftir leikinn.

„Við sköpum fullt en aðstæðurnar gerðu það að verkum að það var virkilega erfitt að fóta sig inn í teigunum, allt frosið en fínt hjá okkur að skapa svona mörg færi."

Íslenska landsliðið er ekki vannt því að keppa í vítaspyrnukeppni en þurfti tvær til að vinna mótið. Hvernig var að taka þátt í vítaspyrnukeppni?

„Það er gaman, gefur þessu smá extra. Ég skoraði úr báðum mínum þannig það er flott," sagði Stefán.


Athugasemdir
banner
banner
banner