Mateta og Abraham á lista Villa - Tveir leikmenn orðaðir við Man Utd - Tottenham vill fá Curtis Jones
   fim 22. janúar 2026 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin í dag - Íslendingaslagur í Noregi
Freysi stýrir Brann gegn Íslendingaliði Midtjylland í kvöld
Freysi stýrir Brann gegn Íslendingaliði Midtjylland í kvöld
Mynd: Sportsklubben Brann
Sjöunda umferðin í deildarkeppni Evrópudeildarinnar fer fram í kvöld og eiga nokkur lið möguleika á að koma sér áfram í 16-liða úrslitin.

Daníel Tristan Guðjohnsen og félagar í Malmö mæta Rauðu stjörnunni klukkan 17:45. Malmö er í 34. sæti með aðeins eitt stig á meðan Rauða stjarnan er í 17. sæti með 10 stig.

Aston Villa heimsækir Fenerbahce til Tyrklands. Villa-menn eru í 3. sæti með 15 stig og gætu mögulega tryggt sæti sitt áfram í 16-liða úrslitin.

Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í Brann mæta Elíasi Rafni Ólafssyni og hans mönnum í Midtjylland í Íslendingaslag í Noregi. Brann er í 22. sæti með 8 stig og í góðum möguleika á að komast í umspilið. Midtjylland er í öðru sæti og komið með annan fótinn í 16-liða úrslitin.

Nottingham Forest heimsækir Braga. Forest er í 11. sæti með 11 stig.

Kolbeinn Birgir Finnsson er væntanlega í hópnum hjá Utrecht sem spilar við Genk. Utrecht er í 32. sæti með eitt stig.

Sverrir Ingi Ingason verður í Ungverjalandi með Panathinaikos sem er í 15. sæti með 10 stig og þá mun Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille mæta Celta Vigo. Lille er í 20. sæti með 9 stig.

Leikir dagsins:
17:45 Malmö - Rauða stjarnan
17:45 Fenerbahce - Aston Villa
17:45 Young Boys - Lyon
17:45 Feyenoord - Sturm
17:45 SK Brann - Midtjylland
17:45 PAOK - Betis
17:45 Bologna - Celtic
17:45 Freiburg - Maccabi Tel Aviv
17:45 Plzen - Porto
20:00 Rangers - Ludogorets
20:00 Roma - Stuttgart
20:00 Salzburg - Basel
20:00 Dinamo Zagreb - Steaua
20:00 Braga - Nott. Forest
20:00 Utrecht - Genk
20:00 Nice - Go Ahead Eagles
20:00 Ferencvaros - Panathinaikos
20:00 Celta - Lille
Athugasemdir
banner
banner