FHL 0 - 2 Grótta
0-1 Nicole Douglas ('66)
0-2 Alexandria Madden ('70)
0-1 Nicole Douglas ('66)
0-2 Alexandria Madden ('70)
FHL og Grótta áttust við í eina leik dagsins í Lengjudeild kvenna og var staðan markalaus í leikhlé.
Nicole Douglas náði forystunni fyrir gestina frá Seltjarnarnesi með laglegu marki beint úr aukaspyrnu á 66. mínútu.
Alexandria Madden tvöfaldaði forystuna skömmu síðar og þar við sat, lokatölur 0-2 á Fellavelli.
Grótta er með 6 stig eftir 3 fyrstu umferðir tímabilsins og skilur FHL eftir með 3 stig.



