Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
banner
   þri 19. maí 2026 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Lykilmaður framlengir við Víking R.
Kvenaboltinn
Mynd: Víkingur
Bergdís Sveinsdóttir er búin að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við Víking R.

Bergdís hefur verið lykilmaður í liði Víkings á síðustu árum og er mikill leiðtogi í leikmannahópnum. Hún er nýbúin að eiga tvítugsafmæli og hefur þegar skorað 26 mörk í 79 leikjum fyrir meistaraflokk. Þar af skoraði hún 11 mörk í 24 leikjum í deild og bikar í fyrra.

Bergdís, sem er uppalin hjá Fram og Víkingi, hefur verið algjör lykilmaður upp yngri landslið Íslands þar sem hún á í heildina 51 leik að baki, þar af eru 28 leikir fyrir U19 landsliðið.

„Við erum afar ánægð með að Bergdís verði áfram hluti af okkar metnaðarfulla starfi næstu árin og hlökkum til að fylgjast með henni halda áfram að vaxa og dafna í okkar búningi. Áfram Víkingur!" segir meðal annars í tilkynningu frá Víkingi.

Bergdís er komin með eitt mark í fyrstu fjórum leikjunum á nýju tímabili í Bestu deildinni.



Slapp
banner