Fjórir Aston Villa menn í draumaliði keppninnar
Morgan Rogers hlaut nafnbótina besti leikmaður Evrópudeildarinnar tímabilið 2025-26 fyrir magnaða frammistöðu í keppninni með Aston Villa.
Rogers og félagar rúlluðu auðveldlega í gegnum útsláttarkeppnina þar sem þeir unnu aldrei með minna heldur en þriggja marka mun. Rogers kom með beinum hætti að átta mörkum í fimmtán leikjum á tímabilinu og sýndi stórkostlega takta.
Hann skoraði og lagði upp í 3-0 sigri gegn Freiburg í úrslitaleiknum eftir að hafa lagt upp gegn Nottingham Forest í undanúrslitum og átt bæði mark og stoðsendingu gegn Bologna í 8-liða úrslitum.
Rogers, sem er 23 ára gamall, spilaði flestar mínútur allra leikmanna Villa í keppninni og er sterklega búist við að hann verði partur af landsliðshópi Englands sem fer á HM.
Rogers er auðvitað í draumaliði tímabilsins í Evrópudeildinni, ásamt þremur liðsfélögum sínum. Emiliano Martínez, John McGinn og Emiliano Buendía eru líka í draumaliðinu sem er valið af tæknilegri nefnd UEFA.
Igor Jesus og Morato eru fulltrúar Nottingham Forest, sem komst í undanúrslit, í draumaliðinu. Freiburg er einnig með tvo fulltrúa í liðinu og svo eiga Celta Vigo, Real Betis og Braga einn fulltrúa hvert. Brasilíski kantmaðurinn Antony er fulltrúi Betis.
Jones El-Abdellaoui, leikmaður Celta Vigo, skoraði mark mótsins. Mörkin laglegu sem Buendía og Youri Tielemans skoruðu í úrslitaleiknum eru í fimmta og sjöunda sæti yfir bestu mörk tímabilsins.
Markvörður: Emiliano Martinez (Aston Villa)
Varnarmenn: Victor Gomez (Braga), Morato (Forest), Matthias Ginter (Freiburg), Oscar Mingueza (Celta Vigo)
Miðjumenn: John McGinn (Aston Villa), Maximilian Eggestein (Freiburg), Morgan Rogers (Aston Villa)
Sóknarmenn: Antony (Real Betis), Igor Jesus (Forest), Emi Buendia (Villa)
The UEFA Technical Observer Group has named Aston Villa's Morgan Rogers as the 2025/26 UEFA Europa League Player of the Season.#UEL https://t.co/9xwgdrPqzH
— UEFA Europa League (@EuropaLeague) May 21, 2026

