Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tekur engan þátt í lokaumferðinni eftir mistök
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Michael Salisbury dómari er í skammarkróknum og fær ekki að starfa á lokadegi ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hann gerðist sekur um mistök í naumum sigri Manchester United gegn Nottingham Forest í síðustu umferð.

   17.05.2026 14:49
Pereira: Dómaraákvörðun réði úrslitum


Matheus Cunha skoraði annað mark Rauðu djöflanna í leiknum en í endursýningu sést að Bryan Mbeumo handlék boltann í aðdragandanum. Atvikið var skoðað í VAR-herberginu og var Salisbury sendur í skjáinn.

Dómarar eru einungis sendir í skjáinn þegar talið er að um augljós mistök sé að ræða en Salisbury var ekki á því máli. Hann skoðaði atvikið aftur og stóð fast við sína ákvörðun.

   17.05.2026 14:26
Gary Neville um markið: Hlægileg ákvörðun


Enska dómarasambandið viðurkenndi mistök í atvikinu en það vekur athygli að þetta er aðeins í sautjánda skipti á sjö tímabilum, og fjórða skiptið á yfirstandandi leiktíð, sem dómari fer gegn ráði VAR-herbergisins.

Salisbury hefur dæmt 13 úrvalsdeildarleiki á tímabilinu og starfað á öðrum í smærri hlutverkum en hann er ekki partur af neinu dómarateymi sem mætir til leiks í lokaumferðina á sunnudag.

Það vekur einnig athygli að James Bell verður í VAR-herberginu í viðureign Fulham gegn Newcastle þrátt fyrir umdeilda ákvörðun í leik Arsenal gegn Burnley. Kai Havertz fór í grófa tæklingu og fékk gult spjald frá dómara leiksins en James Bell sat í VAR-herberginu og taldi dómarann ekki hafa gert nægilega augljós mistök til að senda hann í skjáinn.

   18.05.2026 16:50
Viðurkenna að dæma hefði átt mark Man Utd af

Slapp
banner
banner