Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. júlí 2020 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi Max-deild kvenna: Blikar skoruðu fjögur gegn Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir 0 - 4 Breiðablik
0-1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('9)
0-2 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('14)
0-3 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('28)
0-4 Katla María Þórðardóttir ('36, sjálfsmark)

Fylkir tók á móti Breiðabliki í stórleik kvöldsins í Pepsi Max-deild kvenna. Fylkir hefur komið skemmtilega á óvart á tímabilinu og var taplaus í deildinni fyrir leikinn gegn Blikum.

Blikar létu það ekki á sig fá og gerðu út um viðureignina fyrir leikhlé. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gerði tvennu á fyrsta stundarfjórðungnum og bætti Berglind Björg Þorvaldsdóttir þriðja markinu við á 28. mínútu.

Katla María Þórðardóttir varð svo fyrir því óláni að setja boltann í eigið net eftir hornspyrnu.

Síðari hálfleikur var talsvert jafnari og bættust ekki fleiri mörk við leikinn. Blikar eru áfram með fullt hús stiga á toppi deildarinnar, Fylkir er með tólf stig eftir sjö umferðir.

Valur 3 - 1 FH
1-0 Elín Metta Jensen ('36)
2-0 Hlín Eiríksdóttir ('41)
3-0 Bergdís Fanney Einarsdóttir ('61)
3-1 Madison Santana Gonzalez ('78)

Valur hélt þá pressunni á toppliði Blika með 3-1 sigri gegn FH. Elín Metta Jensen og Hlín Eiríksdóttir skoruðu á lokakafla fyrri hálfleiks og fóru Valskonur inn í leikhlé með þægilega forystu.

Valur verðskuldaði forystuna og bætti Bergdís Fanney Einarsdóttir þriðja markinu við eftir klaufaleg mistök Telmu Ívarsdóttur í marki FH.

Valur komst nálægt því að bæta fjórða markinu við áður en Madison Santana Gonzalez minnkaði muninn fyrir FH. Hún skoraði með skalla eftir fyrirgjöf frá hægri kanti.

Meira var ekki skorað og sanngjarn sigur Vals staðreynd. Valur er með 19 stig eftir 8 umferðir, tveimur stigum eftir toppliði Blika sem á leik til góða.

FH er á botni deildarinnar með þrjú stig.

Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner