Þorlákur Árnason þjálfari Stjörnunnar var þokkalega ánægður með 3-0 sigur sinna stúlkna gegn Fylki í fyrstu umferð Pepsi deildar kvenna í kvöld.
„Ég er bara mjög ánægður. Það er erfitt að nálgast fyrsta leik í Íslandsmótinu og við erum búin að vera rosalega lengi að bíða. Svo unnum við líka síðasta mót svo maður vissi ekki alveg hvernig það færi í mannskapinn. En ég var þokkalega ánægður með frammistöðuna í dag,“ sagði Þorlákur við Fótbolta.net.
„Við hefðum getað klárað leikinn á fyrstu 30 mínútunum en eftir það lentum við bara í basli. Fylkisliðið spilaði betur eftir því sem leið á leikinn, fannst mér.“
Viðtalið við Þorlák í heild sinni má sjá í heild sinni hér að ofan.
























