Chelsea er meðal félagsliða sem ætla að reyna að kaupa Elliot Anderson komandi sumar en talið er að hann sé falur fyrir 100 milljónir punda.
Manchester United og Manchester City hafa verið sterklega orðuð við miðjumanninn að undanförnu en Chelsea er með í kapphlaupinu.
Anderson er 23 ára gamall og er lykilmaður hjá Nottingham Forest eftir að félagið keypti hann úr röðum Newcastle United sumarið 2024, fyrir 35 milljónir punda.
Hann er með þrjú ár eftir af samningi sínum við Forest og verður að öllum líkindum partur af landsliðshópi Englands fyrir HM í sumar.
19.04.2026 13:21
Anderson mættur aftur í lið Forest eftir mikið áfall





