Michael Keane, leikmaður Everton, hefur framlengt samning sinn við félagið út næsta tímabil.
Keane er 33 ára varnarmaður en hann gekk til liðs við félagið frá Burnely árið 2017. Hann hefur spilað 259 leiki fyrir liðið, þar af 29 á þessu tímabili. Hann hefur skorað 19 mörk.
„Ég er mjög ánægður. Félagið hefur mikla þýðingu fyrir mig, það er auðvelt að segja það en félagið er orðiið hluti af mér. Þetta er eins og fjölskylda, fólkið í kringum félagið, stuðningsmennirnir, leikmenn og starfsliðið. Það er sérstakt fyrir mér og ég get ekki ímyndað mér lífið án Everton," sagði Keane við undirskriftina.
„Tíu ár er langur tími. Ég hef séð mikið hérna og gengið í gegnum ýmislegt. Það er gott að við erum á mun betri stað miðað við áður. Ég fer bjartsýnn inn í tíunda tímabilið og að hugsa til þess hvað við getum afrekað og hvar við getum verið er mjög spennandi."
Michael Keane will extend his time with Everton into a 10th season after signing a new one-year contract with the Club until the end of June 2027. ?? #EFC
— Everton (@Everton) April 23, 2026




