ÍBV 2 - 6 KR
0-1 Arnór Ingvi Traustason ('5 )
0-2 Hrafn Tómasson ('17 )
0-3 Aron Sigurðarson ('29 )
0-4 Gabríel Hrannar Eyjólfsson ('45 )
0-5 Aron Sigurðarson ('59 )
0-6 Alexander Rafn Pálmason ('62 )
1-6 Viggó Valgeirsson ('65 )
2-6 Sesar Örn Harðarson ('77 )
Lestu um leikinn
0-1 Arnór Ingvi Traustason ('5 )
0-2 Hrafn Tómasson ('17 )
0-3 Aron Sigurðarson ('29 )
0-4 Gabríel Hrannar Eyjólfsson ('45 )
0-5 Aron Sigurðarson ('59 )
0-6 Alexander Rafn Pálmason ('62 )
1-6 Viggó Valgeirsson ('65 )
2-6 Sesar Örn Harðarson ('77 )
Lestu um leikinn
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 6 KR
KR hefur tímabilið af miklum krafti en liðið hefur skorað 14 mörk í fyrstu þremur leikjunum.
Liðið heimsótti ÍBV í dag og skoraði sex mörk. KR komst yfir snemma leiks og Hrafn Tómasson bætti öðru markinu við með glæsilegu skoti fyrir utan teiginn (Sjáðu það mark hér).
Aron Sigurðarsson bætti síðan þriðja markinu við eftir hálftíma leik. Gabríel Hrannar Eyjólfsson skoraði síðan fjórða markið undir lok fyrri hálfleiks þegar varnarmenn ÍBV sofnuðu á verðinum.
Aron skoraði sitt annað mark og fimmta mark KR eftir klukkutíma leik og Alexander Rafn Pálmason bætti sjötta markinu við stuttu síðar.
Viggó Valgeirsson klóraði í bakkann fyrir ÍBV eftir slæm mistök hjá Halldóri Snæ Georgssyni markverði KR og Sesar Örn Harðarson komst síðan einn í gegn og bætti öðru marki liðsins við en nær komust þeir ekki.
KR er á toppnum með fullt hús stiga en ÍBV er með eitt stig á botninum. Athyglisvert er að níu leikmenn í hópnum hjá KR eru búnir að skora í deildinni eftir þrjár umferðir.
Hrafn Tómasson skoraði stórkostlegt mark í Eyjum! ???? #bestadeildin pic.twitter.com/BzwwyBLzjp
— Besta deildin (@bestadeildin) April 23, 2026
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 3 | 3 | 0 | 0 | 14 - 6 | +8 | 9 |
| 2. Stjarnan | 2 | 2 | 0 | 0 | 6 - 4 | +2 | 6 |
| 3. Breiðablik | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 - 1 | +1 | 5 |
| 4. Fram | 2 | 1 | 1 | 0 | 6 - 4 | +2 | 4 |
| 5. Víkingur R. | 2 | 1 | 1 | 0 | 3 - 1 | +2 | 4 |
| 6. Valur | 2 | 1 | 0 | 1 | 3 - 3 | 0 | 3 |
| 7. Þór | 2 | 1 | 0 | 1 | 4 - 6 | -2 | 3 |
| 8. ÍA | 3 | 0 | 2 | 1 | 4 - 5 | -1 | 2 |
| 9. FH | 2 | 0 | 1 | 1 | 3 - 4 | -1 | 1 |
| 10. KA | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 11. Keflavík | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 12. ÍBV | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 - 9 | -5 | 1 |


