Stuttgart 2 - 1 Freiburg
0-1 Maximilian Eggestein ('28 )
1-1 Deniz Undav ('70 )
2-1 Tiago Tomas ('119 )
0-1 Maximilian Eggestein ('28 )
1-1 Deniz Undav ('70 )
2-1 Tiago Tomas ('119 )
Stuttgart mætir stórveldi FC Bayern í úrslitaleik þýska bikarsins eftir að hafa lagt Freiburg að velli í undanúrslitum í kvöld.
Maximilian Eggestein skoraði eina markið í skemmtilegum fyrri hálfleik eftir hornspyrnu og komust bæði lið nálægt því að skora fleiri mörk áður en heimamenn tóku stjórnina í síðari hálfleik.
Deniz Undav gerði jöfnunarmark eftir skyndisókn á 70. mínútu, sem Bilal El-Khannouss lagði upp eftir glæsilegt einstaklingsframtak, og voru heimamenn óheppnir að setja ekki sigurmark. Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma svo grípa þurfti til framlengingar.
Stuttgart sýndi áfram yfirburði í framlengingunni en tókst ekki að skora fyrr en undir lokin, þegar Tiago Tomás setti boltann í netið á 119. mínútu.
Tomás skoraði glæsilegt mark með hælspyrnu eftir sniðuga fyrirgjöf frá El-Khannouss. Þetta reyndist sigurmarkið svo lokatölur urðu 2-1.




