Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 18:25
Brynjar Ingi Erluson
Davíð Kristján upp úr fallsæti
Davíð Kristján og félagar í Larissa eru komnir upp úr fallsæti
Davíð Kristján og félagar í Larissa eru komnir upp úr fallsæti
Mynd: AEL Larissa Novibet
AEL Larissa, lið Davíðs Kristjáns Ólafssonar, er komið upp úr fallsæti í grísku úrvalsdeildinni eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við Kifisia í dag.

Davíð gekk í raðir Larissa um áramótin og komið mjög öflugur inn í liðið.

Hann hefur verið að spila reglulega með Larissa, en kom inn af bekknum í hálfleik í dag og hjálpaði sínum mönnum að landa stigi gegn Kifisia.

Larissa komst upp úr fallsæti með þessum úrslitum þegar sex umferðir eru eftir, að minnsta kosti í bili, en Asteras Tripolis getur sent þá aftur í fallsæti ef liðið vinnur Panetolikos í kvöld.

Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn af bekknum í 1-0 tapi Gwangju gegn Pohan í suður-kóresku deildinni. Þetta var sjöundi deildarleikur Hólmberts á tímabilinu. Gwangju er í neðsta sæti deildarinnar með aðeins sex stig.

Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FCK sem vann OB, 2-1, í dönsku úrvalsdeildinni. Hann spilaði rúman klukkutíma áður en honum var skipt af velli.

Rúnar Alex Rúnarsson var allan tímann á varamannabekknum hjá FCK sem er 7. sæti deildarinnar með 41 stig.

Ólafur Hjaltason kom inn á sem varamaður hjá Aarhus Fremad sem vann 5-1 sigur á Middelsfart í fallriðli dönsku B-deildarinnar. Aarhus er í 8. sæti með 33 stig.
Slapp
banner
banner