Serge Gnabry, leikmaður Bayern München, mun missa af heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar vegna meiðsla, en þetta staðfesti hann í dag.
Bayern München sendi frá sér tilkynningu á dögunum þar sem greint var frá því að Gnabry hefði rifið aðfærsluvöðva í læri.
Ekki kom fram hversu lengi Gnabry yrði utan vallar, en leikmaðurinn hefur sjálfur staðfest að draumur hans um að fara á heimsmeistaramótið sé úti.
„Það hefur verið erfitt að meðtaka hlutina síðustu daga. Við unnum deildarmeistaratitilinn um helgina og það er enn að miklu að keppa. Varðandi drauminn um að spila á HM þá get ég sagt að hann sé úti. Ég og restin af þjóðinni munum vera heima og styðja strákana, en núna fer öll einbeiting mín á endurhæfingu og vera klár fyrir undirbúningstímabilið. Takk fyrir öll skilaboðin,“ sagði Gnabry.
Gnabry er fastamaður hjá Bayern og þýska landsliðinu. Hann byrjaði alla leiki Þjóðverja í undankeppninni og kom að 21 marki í 37 leikjum með Bæjurum á tímabilinu.




