Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 11:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Þá á Rice að vinna Ballon d'Or"
Mynd: EPA
Man City komst á toppinn í úrvalsdeildinni með sigri gegn Burnley í gær. Arsenal hefur verið lengi á toppnum en gengi liðsins hefur verið slakt að undanförnu.

Arsenal er áfram í Meistaradeildinni en liðið mætir Atletico Madrid í undanúrslitum.

Declan Rice hefur verið frábær á miðjunni hjá Arsenal en Ian Wright, fyrrum leikmaður Arsenal, telur að Rice eigi að vinna Ballon d'Or ef liðinu tekst að hampa Meistaradeildartitlinum.

„Ef Arsenal vinnur úrvalsdeildina verður Declan Rice að vera valinn leikmaður ársins. Ef Arsenal vinnur Meistaradeildina ætti Rice að vinna Ballon d'Or," sagði Wright.
Slapp
banner
banner
banner