„Við vorum frábærir. Við unnum þennan leik í fyrri hálfleik og breyttum svo aðeins, eðlilega eftir að vera 3-0 yfir, þá ákváðum við að verja forskotið. Við vorum svo stórkostlegir í fyrri hálfleik að við áttum fyllilega skilið að vera 3-0 yfir ef ekki meira. Ég gæti ekki verið stoltari af liðinu, mjög margar risa frammistöður, alvöru hjarta og mikil stemning í okkur. Þannig að ég var hrikalega ánægður með þennan fótboltaleik," sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari Vals eftir 3-0 sigur gegn FH í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 3 - 0 FH
Valsarar voru frábærir í fyrri hálfleik og hefðu getað skorað fleiri mörk en þeir í raun gerðu í fyrri hálfleik. Það er því spurning hvort liðið sé farið að taka á sig þá mynd sem Hermann vill sjá.
„Það er engin spurning, það er stígandi í þessu og hefur verið það frá byrjun, en auðvitað viljum við alltaf meira. Ég hefði ekki getað verið stoltari af frammistöðunni, framlaginu og vinnuseminni. Við vorum ákveðnir, maður sá það í augunum á mönnum fyrir leik, það var hungur, hungur til þess að vinna fótboltaleik. Þeir sýndu það svo sannarlega hér í dag," sagði Hermann.
Umræðan í kringum Val hefur verið mjög neikvæð í vetur, en svona góður sigur gæti þaggað eitthvað í neikvæðisröddum.
„Það er það eina sem við getum gert er að standa okkur inn á fótboltavellinum. Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla, það skiptir okkur engu máli. Við verðum bara að gera okkar hér, og getum bara svarað því inn á vellinum," sagði Hermann.
Samúel Kári Friðjónsson kom til Vals í vikunni og spilaði sinn fyrsta leik í kvöld. Hermann er mjög ánægður með að hafa fengið hann til liðsins.
„Þetta er bara akkúrat leikmaðurinn sem okkur vantaði. Hann er bara fullkominn fyrir okkur, það er stórt skref fyrir okkur að fá Samúel Kára inn, hann smellpassar í þetta," sagði Hermann.
Það hefur verið rætt um að verðmiðinn á Samúel hafi verið mjög hár en Hermann segir að hann hafi verið bara eins og mátti búast við.
„Verðmiðinn er sanngjarn og er bara í takti við það sem er að gerast. Enn og aftur, menn fara að blaðra og bulla um það eitthvað, það er alltaf reynt að finna eitthvað, en það bara er ekki rétt. Þetta er bara leikmaðurinn sem okkur vantaði og hvernig sem á það er litið þá var þetta besta fyrir okkur að hann kom. Þannig kannski bar bara gott að við misstum af öðrum," sagði Hermann.
























