Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München eru Þýskalandsmeistarar árið 2026 en liðið tryggði sér titilinn er liðið vann 3-2 sigur á Union Berlín í kvöld.
Íslenska landsliðskonan hefur átt mjög viðburðaríka viku, en hún setti landsleikjamet með Íslandi í 1-0 tapinu gegn Englandi er hún spilaði sinn 146. landsleik og var nú að sækja fjórða deildarmeistaratitilinn með Bæjurum.
Hún byrjaði hjá Bayern sem komst yfir snemma leiks en Union jafnaði þremur mínútum síðar. Barbara Dunst kom Bayern aftur yfir snemma í síðari hálfleik áður en þjálfarinn gerði nokkrar breytingar.
Hann tók fjórar lykilkonur af velli, þar á meðal Glódísi, til þess að spara krafta þeirra fyrir undanúrslitaeinvígið gegn Barcelona í Meistaradeildinni.
Þrettán mínútum fyrir leikslok jafnaði Union en Bayern ætlaði ekki að leyfa þeim að skemma partíið. Þýska landsliðskonan Giulia Gwinn gerði sigurmarkið á 84. mínútu og gulltryggði titilinn.
Fjórða árið í röð sem Bayern vinnur deildina og Glódís verið mikilvægur hluti liðsins öll árin.
Bayern tókst að klára dæmið þegar fjórar umferðir eru eftir og mun þjálfarinn nú geta leyft sér að hvíla bestu leikmennina í lokaumferðunum til að einbeita sér að Meistaradeildinni og bikarúrslitaleiknum gegn Wolfsburg sem er spilaður í næsta mánuði.
Wir gewinnen unsere achte ???????????????????????????????? ????????????????????????????????????????????????????. ??????????????? pic.twitter.com/aOroynuYNc
— FC Bayern Frauen (@FCBfrauen) April 22, 2026


