Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fös 24. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Ísak mætir Leverkusen
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Þýski boltinn byrjar aftur að rúlla þegar RB Leipzig spilar við Union Berlin í kvöld.

Leipzig er í góðri stöðu í meistaradeildarbaráttunni á meðan Union siglir lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar.

Á morgun tekur fallbaráttulið Wolfsburg svo á móti Borussia Mönchengladbach og þurfa heimamenn á sigri að halda í fallbaráttunni ef þeir ætla að ná umspilssætinu til að reyna að forðast óvænt fall úr efstu deild.

Á sama tíma á botnlið Heidenheim heimaleik við St. Pauli og því mikil spenna í fallbaráttunni í fyrstu leikjum laugardagsins.

Þá er barist á ýmsum öðrum vígstöðvum þar sem Eintracht Frankfurt og Freiburg eru að berjast um sæti í Sambandsdeildinni fyrir næstu leiktíð á meðan Bayer Leverkusen, Hoffenheim og Stuttgart eru í harðri baráttu um síðasta meistaradeildarsætið.

Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í Köln taka á móti Leverkusen í spennandi slag. Köln er fimm stigum frá fallsvæðinu.

Föstudagur:
18:30 RB Leipzig - Union Berlin

Laugardagur:
13:30 Wolfsburg - Gladbach
13:30 Heidenheim - St. Pauli
13:30 Augsburg - Frankfurt
13:30 Köln - Leverkusen
13:30 Mainz - Bayern
16:30 Hamburger - Hoffenheim

Sunnudagur:
13:30 Stuttgart - Werder Bremen
15:30 Dortmund - Freiburg
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 30 25 4 1 109 29 +80 79
2 Dortmund 30 19 7 4 61 31 +30 64
3 RB Leipzig 30 18 5 7 59 37 +22 59
4 Stuttgart 30 17 5 8 62 42 +20 56
5 Hoffenheim 30 16 6 8 59 44 +15 54
6 Leverkusen 30 15 7 8 60 41 +19 52
7 Freiburg 30 12 7 11 44 48 -4 43
8 Frankfurt 30 11 9 10 55 57 -2 42
9 Augsburg 30 10 6 14 38 54 -16 36
10 Mainz 30 8 10 12 36 45 -9 34
11 Union Berlin 30 8 8 14 34 52 -18 32
12 Köln 30 7 10 13 44 51 -7 31
13 Gladbach 30 7 10 13 36 50 -14 31
14 Hamburger 30 7 10 13 33 48 -15 31
15 Werder 30 8 7 15 35 53 -18 31
16 St. Pauli 30 6 8 16 26 51 -25 26
17 Wolfsburg 30 6 6 18 41 66 -25 24
18 Heidenheim 30 4 7 19 33 66 -33 19
Slapp
banner
banner
banner