Cristiano Ronaldo og hans menn í Al Nassr eru komnir í úrslitaleik Meistaradeildar Asíu 2 (B-keppni Meistaradeildarinnar) eftir 5-1 stórsigur á Al Ahli Doha frá Katar í kvöld.
Ronaldo var á sínum stað í byrjunarliðinu en reimaði þó ekki á sig markaskóna að þessu sinni.
Frakkinn Kingsley Coman var í stuði og setti þrennu fyrir Al Nassr og þá gerðu þeir Angelo og Abdullah Al Hamdan eitt mark á haus. Angelo var einnig með þrjár stoðsendingar.
Al Nassr er komið í úrslit þar sem það mætir japanska liðinu Gamba Osaka þann 16. maí.
Sigurvegarinn fær sæti í Meistaradeild Asíu fyrir næstu leiktíð, það er að segja ef liðinu tekst að tryggja þátttökurétt í gegnum deildarkeppnina. Al Nassr þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af því miðað við stöðuna í deildinni, en þar er liðið á toppnum með átta stiga forystu þegar fimm umferðir eru eftir.
Job done ?
— AlNassr FC (@AlNassrFC_EN) April 22, 2026
Through to the final ?????? pic.twitter.com/p9VDKp8syw




