Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fös 24. apríl 2026 06:00
Elvar Geir Magnússon
Sigurður Breki að koma hægt og rólega til baka
Sigurður Breki Kárason.
Sigurður Breki Kárason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR-ingar eru með fullt hús eftir þrjár umferðir í Bestu deildinni og rúlluðu yfir ÍBV með 6-2 útisigri í Vestmannaeyjum í gær.

Hinn sextán ára gamli miðjumaður Sigurður Breki Kárason, sem var einn besti leikmaður KR á undirbúningstímabilinu, hefur ekkert leikið í upphafi tímabils en hann fékk heilahristing í verkefni með U17 landsliðinu.

„Hann er að koma hægt og rólega til baka eftir höfuðhöggið á Ítalíu með landsliðinu. Vonandi eru ekki meira en tveir til þrír leikir í að hann verði kominn á fullt," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, þegar hann var spurður út í stöðuna á Sigurði Breka.

Lestu um leikinn: ÍBV 2 -  6 KR

Galdur Guðmundsson hefur heldur ekki verið með í fyrstu umferðunum og Guðmundur Andri Tryggvason verið að glíma við meiðsli.

„Galdur er allur að koma til, hann hefur verið að glíma við meiðsli aftan í læri. Guðmundur Andri meiddist á nára á mánudag og verður eitthvað frá en þetta er ekki alvarlegt," segir Óskar.

Michael Akoto veiktist rétt áður en KR hélt til Vestmannaeyja og var ekki með og þá eru tvær vikur í að Hjalti Sigurðsson komi til baka. KR leikur næst gegn FH á heimavelli á mánudagskvöld.


Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 3 3 0 0 14 - 6 +8 9
2.    Víkingur R. 3 2 1 0 6 - 3 +3 7
3.    Valur 3 2 0 1 6 - 3 +3 6
4.    Stjarnan 3 2 0 1 8 - 7 +1 6
5.    Þór 3 2 0 1 5 - 6 -1 6
6.    Breiðablik 3 1 2 0 2 - 1 +1 5
7.    Fram 3 1 1 1 6 - 5 +1 4
8.    ÍA 3 0 2 1 4 - 5 -1 2
9.    KA 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
10.    Keflavík 3 0 1 2 3 - 6 -3 1
11.    FH 3 0 1 2 3 - 7 -4 1
12.    ÍBV 3 0 1 2 4 - 9 -5 1
Slapp
banner
banner
banner
banner