Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 11:30
Elvar Geir Magnússon
Fyrirliði Rangers kveður eftir ellefu ár á Ibrox
Mynd: EPA
James Tavernier fyrirliði Rangers í Glasgow hefur tilkynnt að hann muni yfirgefa félagið eftir tímabilið.

Tavernier er 34 ára hægri bakvörður og er markahæsti varnarmaður í breskum fótbolta. Hann hefur verið ellefu ár hjá Rangers og þar af fyrirliði síðustu átta ár.

Liðið vann skoska meistaratitilinn 2021, skoska bikarinn árið eftir og deildabikarinn 2023.

Alls hefur Englendingurinn skorað 144 mörk í 562 leikjum með Rangers.

„Félagið hefur verið stór hluti af mínu lífi og minnar fjölskyldu síðustu ellefu ár. Það hefur gefið mér svo mikið, innan og utan vallar," segir Tavernier.
Slapp
banner
banner