Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segist hafa óttast að Þórsarar myndu ná að jafna í leik liðanna í kvöld. KR-ingar komust tveimur mörkum undir eftir frábæra byrjun en gestirnir minnkuðu muninn og fengu tækifæri til að jafna metin.
„Við áttum undir högg að sækja. Þeir fengu mörg horn og hættulegar aukaspyrnur. Maður var alltaf smeykur,“ segir Rúnar.
„Við sköpuðum miklu fleiri færi í dag en í hinum leikjunum sem við höfum spilað. Sóknarleikurinn er aðeins að verða betri og betri.“
Rúnar var spurður að því hvort það væri ekki léttir að máli Ingólfs Sigurðssonar væri lokið en Ingólfur gekk til liðs við Val fyrir rúmum sólarhring.
„Ég held að það sé allavega léttir fyrir Ingólf. Ég vona bara að hannstandi sig vel þar og eigi eftir að vaxa og dafna því hann er góður fótboltamaður þó hann hafi farið yfir strikið. Ég hef rætt við hann og hann hefur beðið alla afsökunar hér og því var vel tekið.“
Hægt er að sjá viðtalið við Rúnar í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
























