,,Ég er mjög sáttur," sagði Hrafnkell Freyr Ágústsson leikmaður Hamars í samtali við Fótbolta.net eftir 6-0 sigur á Dalvík/Reynir á Grýluvelli í dag.
Hrafnkell setti síðustu tvö mörk liðsins eftir að Ragnar Valberg Sigurjónsson setti fyrstu fjögur.
Hamar hefur byrjað mótið vel í 2. deildinni og er í öðru sæti deildarinnar.
,,Við byrjuðum mjög vel og pressuðum þá hátt. Raggi setti þrjú á fyrstu tuttugu en hann er náttúrulega heitari en kveikjari þessa dagana."
Nánar er rætt við Hrafnkel í sjónvarpinu hér að ofan.
























