Stephen Warnock, fyrrum leikmaður Liverpool, átti stóran þátt í því að lögreglan náði að hafa hendur í hári manns sem hafði stundað það að fara að heimili tveggja kvenna og stara inn um gluggann.
Warnock, sem starfar nú sem sparkspekingur í fjölmiðlum, ákvað að taka málin í sínar hendur en önnur kvennana er systir eiginkonu hans.
Warnock, sem starfar nú sem sparkspekingur í fjölmiðlum, ákvað að taka málin í sínar hendur en önnur kvennana er systir eiginkonu hans.
Sökudólgurinn heitir Andrew Mulhearn og er þrítugur. Hann náðist á mynd í gegnum myndavél á dyrabjöllunni á húsinu og var í fyrstu talið að þetta væri innbrotsþjófur að skoða aðstæður. En þegar það var skoðað nánar kom í ljós að hann mætti á sama tíma hvert einasta kvöld og horfði inn um gluggann.
Warnock ákvað að sitja fyrir honum eitt kvöldið og lagði bílnum sínum rétt hjá húsinu. Mulhearn mætti og tók eftir því að hann gæti verið nappaður og flúði af vettvangi. Warnock elti manninn í um 40 mínútur um Liverpoolborg áður en lögreglan svaraði kalli hans, mætti á svæðið og framkvæmdi handtöku.
Mulhearn býr í sömu götu og konurnar sem hann var að fylgjast með og var hann dæmdur í 200 klukkustunda samfélagsþjónustu og fékk þá fimm ára nálgunarbann.
Warnock segist hafa ákveðið að taka málin í sínar hendur til að byggja upp sterkara mál fyrir lögregluna til að hægt væri að dæma manninn.



