Sænska landsliðskonan Stina Blackstenius verður áfram í herbúðum Evrópumeistara Arsenal næstu tvö árin en þetta staðfesti félagið í dag.
Arsenal hefur unnið að því að framlengja við lykilkonur á síðustu vikum og hefur nú verið gengið frá samningamálum Blackstenius sem hefur spilað með liðinu frá 2022.
Blackstenius. sem er þrítug, tryggði Arsenal Evrópumeistaratitilinn á síðasta ári sem var annar Evróputitill félagsins og sá fyrsti síðan 2007.
Framherjinn kom til Arsenal frá BK Häcken fyrir fjórum árum og hefur síðan þá skorað 64 mörk í 153 leikjum.
Hún er annar leikmaðurinn sem framlengir á síðustu vikum en fyrirliðinn Kim Little verður áfram og þá mun þjálfarinn René Slegers stýra liðinu áfram, en hún gerði þriggja ára samning.
Átta leikmenn renna út á samningi í sumar og er framtíð þeirra í óvissu. Þar á meðal eru ensku landsliðskonurnar Beth Mead og Leah Williamson.
Stina Blackstenius is here to stay ??
— Arsenal Women (@ArsenalWFC) April 21, 2026




