Kolo Muani óvænt orðaður við Liverpool - Mainoo að framlengja - Bernardo Silva á radarnum hjá Arsenal og Barcelona
   mið 22. apríl 2026 09:19
Elvar Geir Magnússon
BBC fjallar um áhuga Man Utd á Tchouameni
Aurelien Tchouameni.
Aurelien Tchouameni.
Mynd: EPA
Manchester United hefur áhuga á að kaupa franska miðjumanninn Aurelien Tchouameni frá Real Madrid. BBC fjallar um málið en miðillinn er þekktur fyrir að fara ekki með neitt í loftið nema heimildirnar séu mjög áreiðanlegar.

Það er í forgangi hjá United að styrkja miðsvæði sitt og hafa Elliot Anderson hjá Nottingham Forest, Carlos Baleba hjá Brighton og Adam Wharton hjá Crystal Palace reglulega verið nefndir sem skotmörk.

Það eru þó efasemdir um að Wharton sé rétti maðurinn þar sem leikstíll hans þykist líkjast mikið Kobbie Mainoo sem er nálægt því að skrifa undir framlengingu á samningi sínum.

Samningur hins 26 ára gamla Tchouameni við Real Madrid er til 2028 og vilji hjá spænska félaginu að framlengja hann.

Eftir erfitt tímabil hjá Real, þar sem hefur á ýmsu gengið og allt stefnir í að það verði titlalaust, er þó talið að félagið sé tilbúið að hlusta á rétt tilboð í leikmanninn.
Slapp
banner
banner
banner