,,Þetta er mjög sárt, maður veit ekki hvað maður á að segja. Við vorum að spila virkilega vel í þessum leik og vantaði þessi afgerandi færi til að setja mark á þær. heilt yfir sá ég að fylkisliðið var ekki mikið betra og í raun og veru erum það við sem gerum mistök og þær skora þetta mark," sagði Björgvin Karl Gunnarsson þjálfari KR eftir 0-1 tap gegn Fylki í kvöld en sigurmarkið kom seint í leiknum.
,,Mér fannst við vera töluvert betri, við vorum að spila betur og halda boltanum betur innan liðsins. Það vantar greddu á efsta þriðjungi og þá er þetta komið hjá okkur."
Fylkir fékk gott tækifæri skömmu fyrir markið þegar markvörður KR handlék boltann eftir sendingu til baka og óbein aukaspyrna dæmd rétt fyrir framan markið sem ekkert varð úr. Svo kom markið sem var eftir klaufalegan varnarleik.
,,Óbeina aukaspyrnan var klaufalegt en svo þegar markið kemur er klárlega einbeitingaleysi. Það er drullusvekkjandi að fá á sig þetta mark og tapa þessum þremur stigum. Auðvitað hefði ég viljað vera ofar í deildinni og þessi jafntefli sem við erum búin að fá hafa verið dýr."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.






















