Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 13. júlí 2019 20:51
Brynjar Ingi Erluson
Rússland: Raggi Sig fyrirliði í sigri Rostov
Mynd: Getty Images
Rostov 2 - 1 Orenburg
1-0 Eldor Shomurodo ('11 )
2-0 Aleksey Ionov ('42 )
2-1 Dorde Despotovic ('49 )

Ragnar SIgurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins, var fyrirliði rússneska liðsins Rostov er liðið vann 2-1 sigur á Orenburg í fyrstu umferð deildarinnar í dag.

Ragnar kom til Rostov frá Fulham árið 2018 og hefur verið fastamaður síðan en hann var auðvitað á sínum stað í liðinu í dag.

Eldor Shomurodo skoraði fyrsta markið eftir laglegan undirbúning frá Aleksey Ionov sem bætti svo sjálfur við marki. Dorde Despotovic minnkaði muninn fyrir Orenburg.

Björn Bergmann Sigurðarson kom inná sem varamaður á 83. mínútu leiksins.

Viðar Örn Kjartansson er á mála hjá Rostov en hann kemur aftur til félagsins á næstu dögum. Hann hefur verið á láni hjá sænska liðinu Hammarby síðustu mánuði.
Athugasemdir
banner
banner