Man City, Man Utd og Arsenal á eftir Etta Eyong - Milan hefur áhuga á Zirkzee - Bayern í viðræðum um bakvörð
   mið 24. júlí 2019 13:33
Magnús Már Einarsson
Adam Ingi í Gautaborg (Staðfest)
Markvörðurinn ungi Adam Ingi Benediktsson hefur samið við sænska félagið IFK Gautaborg.

Adam er 17 ára gamall en hann kemur til IFK Gautaborg frá HK.

Adam var áður í yngri flokkum FH en hann fór yfir í HK árið 2017.

Á ferli sínum hefur Adam leikið fjóra leiki með U17 ára landsliðinu og þá spilaði hann með U18 ára landsliðinu í sigri gegn Lettum um síðustu helgi.

Hjá Gautaborg fer Adam líklega í U19 ára liðið þar sem hann mun meðal annars leika undir stjón Hjálmars Jónssonar en hann er aðstoðarþjálfari liðsins.
Athugasemdir
banner