Man City, Man Utd og Arsenal á eftir Etta Eyong - Milan hefur áhuga á Zirkzee - Bayern í viðræðum um bakvörð
   fös 31. október 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mun ekki yfirgefa Newcastle
Mynd: EPA
William Osula, framherji Newcastle, mun ekki yfirgefa Newcastle í janúar en Daily Mail segir frá þessu.

Félagið telur að hann sé að bæta sig og hefur gert góða hluti á tímabilinu þrátt fyrir meiðsli.

Hann var nálægt því að ganga til liðs við Frankfurt fyrir 30 milljónir punda í sumar en þýska félagið reyndi að lækka tilboðið sem varð til þess að hann var áfram hjá Newcastle.

Með Yoane Wissa á meiðslalistnaum hefur Osula spilað stórt hlutverk en hann hefur skorað þrjú mörk í öllum keppnum.
Athugasemdir
banner
banner