Man City, Man Utd og Arsenal á eftir Etta Eyong - Milan hefur áhuga á Zirkzee - Bayern í viðræðum um bakvörð
   fös 31. október 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Unglingalandsliðsmaður semur við ÍA
Mynd: ÍA
Aron Kristinn Zumbergs hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við ÍA. Samningurinn gildir út tímabilið 2028.

Aron er fæddur árið 2010 en hann var lykilmaður í 3. flokki í sumar og átti stóran þátt þegar liðið hafnaði í 2. sæti í Íslandsmótinu.

Mikið efni hér á ferð sem hefur spilað sex landsleiki fyrir U15 og U16 landslið Íslands.

„Við óskum Aroni innilega til hamingju með samninginn og hlökkum til að sjá hann halda áfram að þróast í gulu treyjunni," segir í tilkynningu frá ÍA.


Athugasemdir
banner
banner