Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fim 27. október 2005 15:57
Elvar Geir Magnússon
Maradona hefur mikið álit á Wayne Rooney
Diego Maradona hefur trú á því að Wayne Rooney geti leitt enska landsliðið til mikilla afreka. Maradona fór fyrir liði Argentínu sem varð Heimsmeistari 1986 en hann segir að England eigi mestan möguleika af Evrópuþjóðunum á að vinna keppnina á næsta ári en þá fer hún fram í Þýskalandi.

"Wayne hefur náttúrulega hæfileika sem ekki er hægt að finna hvar sem er. Hann gefur sig alltaf allan í leikinn og veit að hann þarf að leggja sig fram. Skap hans hefur mikið verið í umræðunni en það hjálpar honum bara og er nauðsynlegur hluti af honum sem leikmanni," sagði Maradona.

Argentínumenn eru meðal líklegustu sigurvegara Heimsmeistarakeppninnar á næsta ári en Brasilía og England eru einnig nefnd til sögunnar. "Ég tel að England eigi besta möguleika af öllum þjóðum Evrópu. Það verður þó að segjast að Brasilía lítur út fyrir að hafa sterkara lið en nokkru sinni fyrr,"

"Brasilía er með sóknarmennina Kaka, Ronaldo, Adriano og Ronaldinho sem myndu allir ganga inn í hvaða landslið sem er. Argentína er einnig með mjög hæfileikaríkt lið, hefur Lionel Messi sem er stórefnilegur. Þá eru Carlos Tevez og Hernan Crespo mjög hæfileikaríkir og ættu að geta gert það gott á næsta ári," sagði Maradona.
Athugasemdir
banner
banner