„Ég er ekki sáttur með leikinn, en ég er sáttur með úrslitin," sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur eftir 2-2 jafntefli við Fjarðabyggð í dag.
Lestu um leikinn: Fjarðabyggð 2 - 2 Grindavík
Grindavík lenti 2-0 undir, en með hjálp Alexanders Veigars Þórarinssonar kom liðið til baka og náðu að jafna í uppbótartíma.
„Við náðum stigi á frekar erfiðum velli, það er mjög erfitt að spila fótbolta hérna. Þetta var líka langt ferðalag þannig að ég tek alveg stigið."
Grindavík hefur ekki unnið leik í mánuð, en Óli Stefán hefur engar áhyggjur af stöðu mála.
„Engar áhyggjur. Þetta er verkefni og það er fullt sem þarf að laga hjá okkur og það er gott. Við getum tekið góðar greiningar og lagað okkar leik, en ég hef alls engar áhyggjur."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.






















