Kristinn Freyr Sigurðsson hefur ekkert tekið þátt á undirbúningstímabili Valsmanna sökum meiðsla. Hann fór í aðgerð síðasta haust og fór í aðra aðgerð í vor.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, sagði í viðtali við Fótbolta.net í gær að ekki mætti búast við Kristni á vellinum fyrr en í síðari hluta móts.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, sagði í viðtali við Fótbolta.net í gær að ekki mætti búast við Kristni á vellinum fyrr en í síðari hluta móts.
„Það er ennþá svolítið í land með hann eins og með Patrick (Pedersen). Vonandi eigum við þá inni fyrir seinni hluta móts,“ sagði Hermann.
Miðja Valsmanna er þunnskipuð en þar eru Birkir Heimisson, Bjarni Mark, Albin Skoglund og Lúkas Logi Heimisson. Adam Ægir Pálsson hefur jafnframt spilað inn á miðju á undirbúningstímabilinu.
Jónatan Ingi Jónsson meiddist í leik Vals og KR í gær og þá er Orri Sigurður Ómarsson að snúa aftur eftir meiðsli.


