„Leiðinlegt að væla eftir tapleik en það er hálfsvekkjandi að menn þurfi að fórna lífi og limum nánast til að keyra í ófærð, skafrenningi og viðbjóð," sagði Guðjón Pétur Lýðsson, þjálfari Hauka, eftir 4-0 tap gegn ÍA í Mjólkurbikarnum í gær.
Vonskuveður gekk yfir landið í gær og veginum gegnum Kjalarnes var lokað um tíma. Fréttamaður Fótbolta.net sem ætlaði á leikinn komst ekki á staðinn og lýsti í gegnum útsendingu ÍATV úr sófanum heima hjá sér.
Tveir leikmenn Hauka komust ekki á áfangastað.
„Það voru tveir sem áttu að vera í hóp í dag sem komust ekki, sjúkraþjálfarinn ekki á svæðinu. Mér finnst það svolítið kærulaust hjá KSÍ að láta leikinn fara fram. Úr því að við náðum að koma liði inná og spila þá bara áfram gakk," segir Guðjón.
Hann og aðstoðarmaður hans, Óskar Örn Hauksson, voru báðir skráðir sem leikmenn á skýrslu en komu ekki við sögu.
„Það var bara í neyð því við höfðum ekki nægan mannskap. Við vorum til taks ef það hefði þurft," segir Guðjón sem segir að sitt lið, sem leikur í 2. deild, muni taka lærdóm úr leiknum í gær. „Við lentum í góðum skóla, ÍA er þrusulið og við getum tekið margt úr þessum leik sem við munum nýta okkur í framhaldinu í okkar deild."

Lestu um leikinn: ÍA 4 - 0 Haukar