Eftir geggjaða byrjun á tímabilinu hefur Christian Pulisic glímt við mikla markaþurrð fyrir land og lið á almanaksárinu 2026.
Þessi 27 ára bandaríski landsliðsmaður byrjaði tímabilið virkilega vel, skoraði átta mörk og átti tvær stoðsendingar í ellefu leikjum með AC Milan í ítölsku A-deildinni.
Þessi 27 ára bandaríski landsliðsmaður byrjaði tímabilið virkilega vel, skoraði átta mörk og átti tvær stoðsendingar í ellefu leikjum með AC Milan í ítölsku A-deildinni.
Í þrettán deildarleikjum sem hafa verið spilaðir 2026 hefur Pulisic aðeins átt eina stoðsendingu og hefur ekki enn skorað mark.
Pulisic hefur verið í smá brasi með skrokkinn á sér og aðeins þrívegis spilað allar 90 mínúturnar.
Í síðasta landsleikjaglugga spilaði hann tvo leiki með Bandaríkjunum en náði hvorki að skora gegn Belgíu né Portúgal. Bandaríkin eru að búa sig undir HM í sumar.
Í gær kom Pulisic inn síðasta stundarfjórðunginn í 1-0 tapi AC Milan en liðið er í þriðja sæti, níu stigum frá toppliði Inter.


