„Það er ótrúlegt að ekkert lið í Bestu deildinni hafi séð not fyrir Adam Árna Róbertsson. Hann var frábær í liði Grindavíkur í fyrra, var nánast ástæða þess að liðið fellur ekki," sagði sparkspekingurinn Gunnar Birgisson í Bikarmörkum RÚV í gær.
Adam Árni skoraði tvö mörk ásamt því að skora úr vítaspyrnu sinni er Þróttur vann ÍBV í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum Mjólkurbiksarins á laugardag.
Adam Árni skoraði tvö mörk ásamt því að skora úr vítaspyrnu sinni er Þróttur vann ÍBV í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum Mjólkurbiksarins á laugardag.
Adam ræddi við Fótbolta.net fyrr í dag og var spurður út í ummæli Gunnars og hvort að lið úr Bestu deildinni hafi rætt við hann.
„Það voru einhverjar þreifingar. Á þessum tímapunkti var ég orðinn óþreyjufullur að losna frá Grindavík. Ég held að það hafa allir verið í fríi á þessum tíma. Þróttararnir nýttu sér það bara. Ég er bara mjög sáttur að hafa endað í Þrótti,“ sagði Adam. Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.



