Þorsteinn Hreiðar Halldórsson landsliðsþjálfari kvenna hefur neyðst til að gera breytingu á landsliðshópnum sem mætir Úkraínu og Spáni í landsleikjahlénu.
Hafrún Rakel Halldórsdóttir dettur úr hópnum vegna meiðsla og tekur Jelena Tinna Kujundzic stöðu hennar. Hafrún Rakel leikur með Bröndby í Danmörku á meðan Jelena er hjá Þrótti í Laugardal.
Jelena mun þó ekki ná leiknum á útivelli gegn Úkraínu sem er á dagskrá á föstudaginn, en hún verður í hóp í heimaleiknum gegn ógnarsterku landsliði Spánar á þriðjudag.
Jelena er fædd 2003 og gæti spilað sinn fyrsta A-landsleik ef hún fær að koma við sögu gegn Spánverjum. Hún á leiki að baki fyrir U23, U19 og U18 landsliðin.
Stelpurnar okkar eru að berjast við Úkraínu um þriðja sæti riðilsins og er Ísland með þriggja stiga forystu eftir 1-0 sigur í fyrri innbyrðisviðureign liðanna sem fór fram á Laugardalsvelli.
21.05.2026 13:03
Landsliðshópurinn - Sveindís valin þrátt fyrir meiðsli




