Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
   mið 03. júní 2026 18:08
Ívan Guðjón Baldursson
Mikael opinn fyrir endurkomu til AGF
Mikael á 39 landsleiki að baki.
Mikael á 39 landsleiki að baki.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Mikael Neville Anderson er mikilvægur hlekkur í liði Djurgården í sænska boltanum eftir að Svíarnir keyptu hann úr röðum AGF í Danmörku í fyrra.

Mikael var lykilmaður í liði AGF en ákvað að skipta yfir til Svíþjóðar og átti flott fyrsta tímabil með Djurgården þar til meiðsli settu strik í reikninginn.

Eftir brottför Mikaels frá AGF tókst hans fyrrum liðsfélögum að vinna dönsku deildina í fyrsta sinn í 40 ár. Mikael er sagður vera í viðræðum við þrjú dönsk félög eftir eitt ár í Svíþjóð og var spurður hvort það sé mögulegt að hann snúi aftur til Árósa.

„AGF á sérstakan stað í hjartanu mínu en það er margt sem þarf að gerast til að ég fari aftur þangað. Þegar ég sný aftur í danska boltann þá verður AGF einn af mögulegum áfangastöðum, þetta er félag sem skiptir mig miklu máli," sagði Mikael meðal annars í viðtali við Viaplay.

Mikael er 27 ára gamall og samningsbundinn til 2029.

   01.06.2026 17:30
Segja Mikael í viðræðum við þrjú dönsk félög

Slapp