Manchester City og Chelsea eru í viðræðum þessa dagana varðandi framtíð ítalska þjálfarans Enzo Maresca sem var fjarlægður úr stjórastarfinu hjá Chelsea í janúar.
Maresca er enn með þrjú ár eftir af samningi sínum hjá Chelsea og eru vinnuveitendur hans ekki sáttir með framkomu Man City í tilraunum félagsins til að lokka Maresca til sín meðan hann var samningsbundinn Chelsea.
Maresca virtist vera að reyna að láta reka sig með ummælum sínum á fjölmiðlafundum undir lok dvalarinnar hjá Chelsea og eru stjórnendur félagsins sannfærðir um að Man City hafi átt þátt í hegðun þjálfarans sem vildi losna undan samningi til að geta tekið við hjá City í sumar.
Chelsea mun biðja um greiðslu til að leysa Maresca undan samningi en hann er sagður vera eina skotmark City fyrir þjálfarastarfið. Maresca starfaði áður sem aðstoðarþjálfari Pep Guardiola hjá City og er lærlingur hans, eins og Mikel Arteta sem varð Englandsmeistari með Arsenal á dögunum.
Stjórnendur City vonast til að samkomulag náist á næstu dögum.
19.05.2026 13:32
Chelsea mun krefjast bóta fyrir Maresca



