KA er með montréttinn á Akureyri eftir að hafa unnið 1-0 sigur á Þór í grannaslagnum í Bestu deild karla á VÍS-vellinum í kvöld.
Þórsarar urðu fyrir miklu áfalli snemma leiks er Ganamaðurinn Isaac Atanga virtist ökklabrotna eftir mínútu. Hann hljóp Kára Gautason uppi á kantinum, en missteig sig illa og var fluttur af vellinum á börum og síðar í sjúkrabíl.
Atli Sigurjónsson fékk dauðafæri eftir tuttugu mínútna leik en Steinþór Már Auðunsson varði frábærlega í markinu. Ágúst Eðvald Hlynsson fékk boltann, kom honum inn á hættusvæðið á Atla sem átti hörkuskot en Steinþór sá við honum með löppunum.
Fáeinum mínútum síðar meiddist Rodri, leikmaður KA, eftir baráttu á miðjum velli. Hann fékk högg á hnéð og var utan vallar í smástund áður en hann kom aftur inn á völlinn.
Þórsarar fengu annað færi til að skora en Markús Máni Pétursson bjargaði á línu eftir skalla.
Eftir um það bil hálftíma leik gat Rodri ekki haldið leik áfram eftir að hafa farið í aðra baráttu. Hann var einnig borinn af velli eins og Atanga, en Sveinn Margeir Hauksson kom inn í stað hans.
Hitinn var mikill og nóg af brotum en aðeins eitt gult spjald í fyrri hálfleiknum, það er að segja fyrir utan Sigurð Heiðar Höskuldsson, sem sá gult á hliðarlínunni.
Í þeim síðari fór KA að skapa sér aðeins meira og var Oliver Heiðarsson hættulegur eftir að hafa mistekist að koma sér inn í leikinn í fyrri.
Aron Birkir Stefánsson sá við honum í markinu á 51. mínútu og síðan aftur aðeins nokkrum mínútum síðar.
Ákefðin var mikil í leiknum og hægðist aðeins á leiknum þegar á leið.
Aron Ingi Magnússon fékk hörkufæri til að koma Þór yfir á 79. mínútu en Steinþór Már varði vel. Það var allt í þessum leik nema mörkin eða fram að 86. mínútu.
Bjarni Guðjón Brynjólfsson fór í glórulausa tæklingu á Hallgrím Mar Steingrímssyni í teignum. Hann kom fljúgandi í átt að KA-manninum sem steinlá og vítaspyrna dæmd. Hallgrímur fór sjálfur á punktinn og sendi Aron Birki í vitlaust horn og fagnaði síðan fyrir framan KA-menn.
Stórt atvik og þurfti þetta hreinlega til að fá mark í leikinn, en Þórsarar fengu nokkrar mínútur í uppbótartíma til þess að fá eitthvað úr leiknum, en það dugði ekki.
KA sótti sinn fyrsta sigur á tímabilinu og eru stigin fjögur talsins, en Þórsarar með 6 stig eftir fimm umferðir.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 4 | 4 | 0 | 0 | 18 - 8 | +10 | 12 |
| 2. Víkingur R. | 4 | 3 | 1 | 0 | 10 - 3 | +7 | 10 |
| 3. Valur | 4 | 3 | 0 | 1 | 10 - 5 | +5 | 9 |
| 4. Breiðablik | 4 | 2 | 2 | 0 | 6 - 1 | +5 | 8 |
| 5. Fram | 4 | 2 | 1 | 1 | 11 - 6 | +5 | 7 |
| 6. Stjarnan | 4 | 2 | 0 | 2 | 10 - 11 | -1 | 6 |
| 7. Þór | 4 | 2 | 0 | 2 | 5 - 10 | -5 | 6 |
| 8. Keflavík | 4 | 1 | 1 | 2 | 5 - 7 | -2 | 4 |
| 9. ÍA | 4 | 0 | 2 | 2 | 4 - 9 | -5 | 2 |
| 10. KA | 4 | 0 | 1 | 3 | 4 - 8 | -4 | 1 |
| 11. FH | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 11 | -6 | 1 |
| 12. ÍBV | 4 | 0 | 1 | 3 | 5 - 14 | -9 | 1 |





