Hún var léttari brúnin á Hallgrími Jónassyni þjálfara KA er hann mætti í viðtal við Fótbolta.net í dag en að undanförnu. Tilefnið enda 1-0 sigur á Þór í grannaslag á Akureyri. Haddi sagði um tilfinninguna að leik loknum.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 1 KA
„Hún er mjög góð, virkilega ánægður með mína menn og ánægður með allt fólkið sem mætti hérna. Geggjaður stuðningur hjá báðum liðum og gaman að sjá okkar fólk mæta og hafa trú á okkur og lemja okkur áfram.“
KA hafði aðeins fengið eitt stig fyrir leik dagsins. Hvernig nálgaðist Haddi því leikinn. Var þetta leikur sem varð að vinnast?
„Nei ég hugsaði það ekki. En þetta er stórleikur og staðan var þannig að við vorum með eitt stig og búnir að eiga slaka frammistöðu þar sem mér fannst hugarfarið ekki vera í lagi. Ég minntist á það bæði við liðið og fjölmiðla og fékk frábært svar og það er þetta sem þarf.“
Hversu stórt er það fyrir Hadda að vinna þennan leik?
„Ég veit ekki hversu stórt en það er mjög þægilegt. Við vorum komnir í þá stöðu að vera með eitt stig og slæma frammistöðu og það er bara frábært að sjá okkur leggja okkur 100% fram. Þetta róar taugarnar hjá mér og strákunum. “
Sagði Haddi en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.























