Eftir hörkuleik á Vísvellinum á Akureyri í dag þurftu heimamenn í Þór að gera sér að góðu að fara stigalausir af velli eftir dramatískar lokamínútur og 1-0 sigur granna þeirra í KA. Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs var til viðtals við Fótbolta.net að leik loknum og gat ekki komið vonbrigðum sínum í orð.
Lestu um leikinn: Þór 0 - 1 KA
„Nei það er ekki hægt. Sérstaklega í ljósi þess hvernig þessi leikur spilaðist. Mér fannst við betri aðilinn, spiluðum betri fótbolta og með meiri orku heldur en þeir. Fannst góður taktur í okkur og við ná að stoppa allan takt hjá þeim eða mér leið þannig á hliðarlínunni. En aftur kemur leikur þar sem við fáum færi til þess að skora mörk og við nýtum þau ekki.“
Siggi var spurður frekar út í færin sem ekki nýttust þar sem skotin fóru beint á markvörð KA og annað eins.
„Það er bara þannig og við getum ekkert verið að greina það neitt dýpra en það að við þurfum aðeins meira sjálfstraust.“
Sigurmark KA í leiknum kom úr vítaspyrnu sem dæmd var á Bjarna Guðjón Brynjólfsson leikmann Þórs sem fór í glæfralega tæklingu. Hvernig fannst Sigga atvikið?
„Ég bara veit það ekki. Mér fannst við bara klaufar, hann fer í boltann en tekur hann líka niður.“
Þórsarar vildu margir aukaspyrnu í aðdragandanum?
„Ég bara sá það ekki, við vorum bara klaufar að senda hann þarna inn. Opna ekki betur og spila í kringum pressuna hjá þeim þegar þeir voru varla búnir að vinna boltann á okkar helming einu sinni í leiknum.“
Sagði Sigurður en allt viðtalið við hann má sjá hér að ofan.























